Löggildur ökukennari // Árni Jóhannesson
ÞJÓNUSTAN - STARFSSVÆÐIÐ
ALMENNT ÖKUNÁM - B réttindi
Árni ökukennari hjá Utiaðaka.is býður ökukennslu til B-réttinda á höfuðborgarsvæðinu, (Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ) í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfosssvæðinu. Kennslan fer fram á íslensku og ensku og þú getur valið um beinskiptan eða sjálfskiptan bíl.
Prófstaðir eru í mjóddini í Reykjavík og á Selfossi
AKSTURSMAT
Ég býð upp á akstursmat á starfssvæðinu fyrir þá sem þess óska.
ALDREI BIÐLISTI
Hluti hverrar viku frátekinn fyrir nýja nemendur svo þú getir alltaf hafið ökunámið án biðlista.
Bókaðu ökutíma á Utiadaka.is eða hafðu samband við Árna
í síma 897 4693.
PERSÓNULEGT
Sniðið að þörfum hvers og eins
Kennsla á íslensku eða ensku
ÖRYGGI
Ekki bara bílstjóri, heldur öruggur og meðvitaður ökumaður
SAMKENND
Mætum þér þar sem þú ert

UM
Ég heiti Árni ég er ökukennari hjá UTIADAKA.IS – en leið mín hingað var ekki bein, heldur full af beygjum og bensínlykt.
Ég er lærður bifreiðasmiður og hef unnið við viðgerðir, viðhald og endurbyggingu bíla. Ég hef alltaf haft áhuga á bílum með hestöfl – og hvernig þeir virka. Ég hef líka unnið við sölumennsku og það besta við það er að kynnast fólki, - því fólk er oft svo skemmtilega ólíkt. Þegar ég ákvað að verða ökukennari sá ég möguleika á að sameina þekkingu mína á bílum við mannleg samskipti.
Fyrir mér snýst ökukennsla ekki bara um að komast í gegnum próf, heldur að byggja upp sjálfstraust, ábyrgðartilfinningu og jákvæða tengingu við akstur. Ég legg áherslu á að nálgast hvern nemanda af áhuga og virðingu – því allir læra á sinn hátt og á sínum hraða.
Mér finnst mikilvægt að skapa öruggt og jákvætt námsumhverfi þar sem þú mátt spyrja, gera mistök og vaxa – hvort sem þú ert að læra að starta bíl í fyrsta sinn eða að fínstilla beygjurnar fyrir próf.
Ég hlakka til að taka þátt í ferðalaginu þínu!
“Ég er bifreiðasmiður og ökukennari"

SKILMÁLAR
Kennslustundin er 45 mínútur. Ökutímar geta verið mislangir, eftir viðfangsefni.
Nema um annað sé samið er reikningur sendur í lok hvers mánaðar fyrir tímum þann mánuð. Áður en farið er í ökupróf þarf að vera búið að gera upp.
